Í dag eru liðinn 30 ár frá undirritun Ramsar-sáttmálans
um verndun votlendis. Af því tilefni er vert að minna á að tveimur af þeim
þremur votlendissvæðum sem íslenska ríkið hefur tilnefnt sem verndarsvæði
samkvæmt Ramsar-sáttmálanum er nú ógnað vegna framkvæmda. Annað er Mývatn
og Laxá. Hitt er Þjórsárver.[1]
Í stjórnsýslukæru Náttúrurannsóknarstöðvarinnar
við Mývatn vegna úrskurðar
Skipulagsstjóra frá 7. júlí 2000 segir að
"6. Í úrskurðinum er ekki tekið tillit til ákvæða Ramsarsamningsins um að nýting vatna eigi að vera skynsamleg og í honum er ekki tekið tillit til þeirrar áhættu sem tekin yrði með námagreftri í Syðriflóa vegna þess að röskun á lífríki Mývatns af hans völdum er líklegast óafturkræf.”
Mývatn var tekið af svörtum lista Ramsar-sáttmálans árið 1993 í
kjölfar yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar þess efnis að leyfi til
kísilgúrnáms á botni vatnsins yrði ekki endurnýjað. Úrskurður
umhverfisráðherra frá 1. nóvember 2000 gengur gegn þeirri yfirlýsingu.
Lífríki Þjórsárvera er nú ógnað vegna fyrirætlana
Landsvirkjunar um að byggja Norðlingaöldulón og 6. áfanga Kvíslaveitu. Búist
er við að Landsvirkjun leggi fram matsáætlun vegna þeirra áætlana innan
skamms. Vísindamenn hafa varað við afleiðingum slíkra framkvæmda á lífríki
Þjórsárvera.
Fyrir Alþingi liggur þingsályktunartillaga[2]
um að tilnefna Eyjabakka á skrá Ramsar-samningsins yfir alþjóðlega mikilvæg
votlendissvæði.
[1] Hið þriðja er Grunnafjörður.
[2] Kolbrún Halldórsdóttir, Katrín Fjeldsted, Þórunn Sveinbjarnardóttir
Náttúruverndarsamtök Íslands
Þverholti 15
105 Reykjavík
Sími: 5512279
Fax: 5512279
GSM: 8972437
http://www.mmedia.is/nsi