Hjól og ból. Gisting fyrir hjólreiðamenn

Hugmynd að átak til að auka hjólreiðar á Íslandi

 

Hvers vegna eru hjólreiðamenn markhópur?

Hjólreiðar gefa fólki nána snertingu við náttúruna og auka skilning á henni um leið og það fær að takast á við hana. Markmið þessa átaks er fyrst og fremst til að auka hjólreiðar á Íslandi um leið og fólk ferðist vistvænt með nýstárlegum og sjálfbærum hætti. Horfast verður í augu við það að tjaldvagnar hafa fækkað gistinóttum á mörgum gististöðum. Það verður því að takast á við þá þróun með einhverjum hætti. Auðvitað er hægt að setja fjármagn í að sannfæra akandi tjaldvagnaeigendur um ágæti gististaða en liklega væri betra að ná til nýrra markhópa eins og t.d. hjólreiðamanna.   

 

Um hvað snýst átakið/þjónustan “Gisting fyrir hjólreiðamenn”?

Síðustu ár hefur ekki tekist að auka hjólreiðar á Íslandi, heldur þvert á móti má gera ráð fyrir að þær hafi verið á undanhaldi. Kemur þar til að fólk hefur almennt eignast bíla sem það er farið að nota óspart til að koma sér á milli staða. Það hafa því margir ánetjast bílnum og þægindum hans og þess vegna ekki leitt hugann að öðrum lausnum. Þessu hefur fylgt vandamál svo sem hreyfingarleysi með tilheyrandi “menningarsjúkdómum” eins og offitu.

Það fólk er hins vegar til sem gæti vel hugsað sér að fara sínar ferðir með öðrum hætti eins og á reiðhjóli ef aðstæður og tilefni býðst.  

Gisting sérstaklega ætluð hjólreiðafólki er þekkt í öðrum löndum. Má þar nefna Cykel Camping í Danmörku, Bett und Bike í Þýskalandi og Bed and Shower sem finna má víða um heim. Er þarna verið að höfða til fólks sem tilbúið er að reyna á sig í sínum ferðalögum og því er reynt að koma til móts við það á einhvern hátt með ódýrri eða frírri gistingu, tjalda í görðum eða gista í heimahúsum.

Hér er hugmyndin að bjóða upp á ódýra gistingu fyrir hjólreiðamenn og er þá fyrst um sinn horft til þeirra sem boðið hafa bændagistingu.

 

Ódýrt?

Skoða þarf sérstaklega vel verðlagið á gistinguni. Upphæðirnar hér fyrir neðan eru ekki heilagar tölur. Það er hinsvegar spurning hvað mikla vinnu á að leggja í vefsíðugerð til átaks sem hugsanlega hreyfir ekki við neinum. Fyrst um sinn er mikilvægt að verðlagið veki eftirtekt svo átakið veki athyggli. Það gæti staðið yfir í eitt ár eða hugsanlega 5 ár allt eftir því hvernig málin þróast. Ferðabændur og Fjallahjólaklúbburinn geta alltaf sagt upp samningi við hver áramót ef þeim finnst sig bera skarðan hlut frá borði.  Athugið, það væri best ef hjólreiðamenn fengju þessa þjónustu frítt, því munið, að þetta á aðeins við um þá sem koma á hjólum og hafa skírteini ÍFHK

Hugmyndin er að gisting í svefnpokaplássi kosti 500 kr. Innifalið í því er aðgangur að sturtu og salerni auk eldunaraðstöðu ef aðstæður leyfa. Með því er átt að ef hita þarf sturtuvatn með rafmagni eða gasi þá sé hægt að rukka fyrir sturtuna sérstaklega. Lika, ef ekki eru eldavélahellur þá sé þó aðstaða til fyrir notkun prímusa. Á hverjum stað þarf að vera hægt að koma hjólinu í skjól og dytta að því undir þaki. Við þéttbýlisstaði þarf að vera hægt að læsa hjólið innandyra.

Á stöðum þar sem boðið er upp á tjaldstæði er hugmyndin að aðstaðan verði sú sama en gisting fyrir einstakling verði annars 400 kr.

Þeir fái aðeins afslátt sem komi á reiðhjóli og geti framvísað skírteini Íslenska fjallahjólaklúbbsins, ÍFHK. Þá sé ekki hægt að fá þennan afslátt ef komið er á bíl þó svo skírteinið sé haft um hönd.

Börn yngri en 12 ára fái frítt.

Öll önnur þjónusta svo sem matur, morgunverður og afþreying verði á fullu verði og samsvarandi því sem almennt gerist til annarra ferðamanna.

Fyrst um sinn verður útlendingum ekki boðin þessi þjónusta. Það verður þó skoðað eftir að reynsla er komin á verkefnið. Mikilvægast er að fá Íslendinga til að ferðast á hjólum.

 

Þetta er allt of ódýrt. Hvað fá gististaðirnir í staðinn?

Eins og fyrr segir þá er ekki mikið um að Íslendingar ferðist á reiðhjólum. Það verður því vart hægt að búast við að þetta lága gjald setji strik í reikninginn í bráð fyrir gistiseljendur. Hægt er að endurnýja eða segja upp samningnum 1. janúar ár hvert.

Gististaður sem ákveður að taka þátt í “hjólagistingunni” fær úthlutað allt að 1-2 mb. fríu heimsíðusvæði. Eigendur gististaða geta ofið síðuna sjálfir eða fengið þá þjónustu sér að kostnaðarlausu.  Þar þurfa að vera myndir af gististaðnum (séð frá vegi), aðstöðunni og næsta nágrenni auk annarra upplýsinga sem gæti hentað ferðafólki, ekki síst hjólreiðafólki. Mikilvægt er að þar komi fram verð á þjónustu og upplýsingar um aðbúnað. Heimasíðan verður unnin í römmum (frames) svo auðvelt sé fyrir gististaðina að nýta sér sitt vefsvæði sem sína eigin vefsíðu á öðrum vetfangi án þess að vefsíða “hjólagistingarinnar” þvælist fyrir. Þannig gæti t.d. bærinn Hof  keyp sér lén og notað vefsíðuna með veffangið www.hof.is og auglýst það í bæklingum án þess að vefsíða hjólagistingarinnar komi þar sérstaklega fram.

Ef gistinóttum fjölgar vegna hjólreiðafólks og rekstararðila þyki hann litið fá í sinn hlut, þá getur hann sagt upp samningi eins og fyrr segir. Það má þá eins segja að markmið ÍFHK hafi náðst með fjölgun hjólreiðamanna.  Hækkun verðlags þessarar þjónustu verður skoðuð í samhengi við almennar verðhækkanir, dreifingu gistinátta og hvort árangur hafi náðst í því að fjölga hjólreiðamönnum. Einnig gæti komið upp sú staða að verðleggja þyrfti gistinguna mismunandi eftir því hvort hún sé í afdal eða nærri þéttbýli. Það verður skoðað þegar reynsla er komin á verkefnið.

 

Heiti.

Mikilvægt er að heiti þessarar þjónustu sé auðskilið, hljómi vel og sé auðvelt í munni, skiljanlegt og stutt. Hér koma nokkar hugmyndir:

 

 

Hjól og ból > www.hjologbol.is

Hjólaból > www.hjolbol.is

Hjólagisting > www.holagisting.is

Hjól í ból > www.hjolibol.is  

Hjólból > www.hjolbol.is

 

 

Hjól og rúm > www.hjologrum.is

Hjólarúm > www.hjolarum.is

Hjól í rúm > www.hjolirum.is

Hjólarúm > www.hjolarum.is

Bike and bed > www.bikebed.com

 

 

Hver ætlar að sjá um þetta verkefni?

Fyrst um sinn mun undirritaður, Magnús Bergsson, sjá um verkefnið og koma því af stað. Það er hins vegar unnið í sjálfboðavinnu og því munu hlutir hugsanlega ekki ganga jafn hratt fyrir sig eins og ef unnið væri daglega við þetta í 8 klukkustundir á dag. Íslenski fjallahjólaklúbburinn eru fjárvana félagssamtök og er allt starf þar unnið í sjálfboðavinnu. Verður leitað til styrktaraðilar um að borga kostnað við vefhýsingu og lén vefsíðunar Er það forsenda þess að af þessu verður. Líklega verður leitað til ferðamálaráðs.

 

Þurfa gististaðir að borga í þetta verkefni?

Nei. Ekkert annað en að bjóða hjólandi félagsmönnum Íslenska fjallahjólaklúbbsins upp á ódýrt eða frítt svefnpokapláss.

Kostnaður Fjallahjólaklúbbsins verður aðallega í formi vinnuframlags.

 

Aðrar hugmyndir.

Finna þarf skemmtileg slagorð sem ferðabændur geta notað til að "réttlæta" ótrúlega lág verð á gistingu til hjólreiðamanna. Það mætti t.d. vísa til heilbrigði og kynbóta þjóðarinnar. Að þjóðin sé hætt að vilja feitt kjöt og því skuli jafnt yfir alla ganga....ofv

         Útbúa þarf merki og skilti fyrir þessa þjónustu til að auðkenna gististaði sérstaklega við heimkeyrslur.

Hver gististaður á sér stimpil þar sem á væri mynd sem auðkenndi gististaðinn og heiti. Það gæti því orðið spennandi verkefni eða áskorun fyrir hjólreiðamenn að safna þeim (lika fyrir aðra). Hönnun og kaup á stimpli gæti því talist til kostnaðar fyrir gististaðinn.

Svo þetta átaksverkefni komist til skila þá verður mikilvægt að koma upplýsingum um þetta til fjölmiðla, ekki síst með ferðasögum hjólreiðamanna

Útbúa þarf  “siðareglur” ferðamannsins í umgengni á gististöðum.

Vandamál? Hugsanlega þarf að útbúa sér skírteini fyrir “hjólagistinguna” sem aðeins félagsmenn ÍFHK fengju. Þannig mætti útiloka þá einstaklinga frá þessari þjónustu sem uppvísir hafi orðið um að brjóta reglur ferðamannsins án þess að þeir missi félagskírteini ÍFHK.

Hugsanlega þarf að selja skírteinið fyrir hjólagistinguna (t.d 500kr). Það gæti gefið möguleika á betri þjónustu auk þess ekki þá bundið við meðlimi Fjallahjólaklúbbsins.

Athuga vel og finna ráð við: Ferðabóndi getur komist upp með að segja alltaf að staðurinn sé uppbókaður þegar hjólreiðamenn komi á staðinn þó svo sé ekki, en samt nýtt vefsvæðið.

 

Allar hugmyndir eru vel þegnar.

 

 

Magnús Bergsson

nature@islandia.is

 

 

Aðrar vefsíður sem Magnús sér nú um eru:

 

http://icebike.net

http://hjol.org

http://simnet.is/bluebiking

http://this.is/augnablik

 

 

Gisting fyrir hjólreiðafólk:

Á Ítalíu má finna: http://www.italybikehotels.it/